Fyrir fótaaðgerðafræðinga · Íslenskt

Sjúkraskrá og dagbók sem er þægileg í notkun

Fótaskrá heldur utan um skjólstæðinga, komur, myndir og tímabókanir á einum stað, með SMS-áminningum sem fækka skrópum. Hún er byggð á kröfum laga um sjúkraskrár, svo stofan er tilbúin þegar rafræn sjúkraskrá verður skylda 1. desember 2026.

  • Ekkert að setja upp
  • Íslensk aðstoð
  • Tveggja þrepa innskráning
  • Dagleg afritun
Dagbók Fótaskrár með bókunum tveggja fótaaðgerðafræðinga yfir daginn
Dagbókin: dálkur á hvern starfsmann. Gervigögn.
14 dagarfrí prufa, ekkert binst
0 kr.stofnkostnaður
1 kerfisjúkraskrá, dagbók og SMS
1.12.2026rafræn sjúkraskrá verður skylda
Eiginleikar

Allt sem stofan þarf, ekkert óþarft

Frá tímabókun til útskriftar: bókaðu tímann, sendu áminningu, skráðu komuna og taktu myndir í einu kerfi sem er hannað fyrir vinnudag fótaaðgerðafræðings.

Meðferðarnótur

Skipulegir reitir fyrir ástæðu komu, sjúkrasögu, skoðun og áætlun. Lyf, sjúkdómar og ofnæmi fylgja skjólstæðingnum milli koma, svo ekki þarf að skrifa þau aftur.

Dagbók og tímabókanir

Dálkur á hvern starfsmann, dags- og vikusýn, opnunartími, lokanir og frí. Endurteknar bókanir, til dæmis á sex vikna fresti, með einum smelli.

SMS-áminningar

Sjálfvirk áminning fyrir tímann, með nafni stofunnar sem sendanda. Þú velur hvenær og hvaða texti fer, og skjólstæðingar geta afþakkað.

Myndir og teikningar

Taktu mynd með spjaldtölvu eða síma beint inn í komuna, án millilendingar í myndasafni tækisins. Teiknaðu á fótamynd og berðu saman milli koma.

Fljótleg leit

Finndu skjólstæðing eftir nafni, kennitölu eða síma og sjáðu allar komur í tímaröð, ásamt skjölum, myndum og samantektum við lok meðferðar.

Starfsmenn og móttaka

Hver starfsmaður með eigin aðgang og starfsheiti. Móttökuaðgangur sér dagbókina en ekki sjúkraskrár, og trúnaðaryfirlýsing er undirrituð við fyrstu innskráningu.

Öryggi

Tveggja þrepa innskráning, dulkóðuð tenging, stöðug öryggisvöktun og dagleg afritun á annan stað. Gögn eru hýst innan EES.

Aðgangsskráning

Hver opnaði hvaða sjúkraskrá, hvenær og hver breytti hverju, með nafni og starfsheiti. Fyrri útgáfur eru varðveittar þegar komu er breytt.

Noona-tenging

Bókarðu í Noona? Bókanirnar birtast sjálfkrafa í dagbók Fótaskrár og tengjast sjúkraskrá eftir kennitölu. Engar heilsufarsupplýsingar fara til Noona.

Vinnudagurinn

Frá bókun til útskriftar

  1. Tíminn bókaður

    Í Fótaskrá eða Noona. Skjólstæðingurinn fær SMS daginn áður.

  2. Koman skráð

    Smelltu á bókunina: koman opnast með heilsufarsupplýsingum frá síðustu komu.

  3. Myndir og nótur

    Myndir beint úr spjaldtölvunni, teikning á fót og stutt eða ítarleg nóta.

  4. Næsti tími

    Bókaðu endurkomu strax, eða gerðu samantekt við lok meðferðar.

Lög um sjúkraskrár

Tilbúin fyrir rafræna sjúkraskrá

Fótaskrá er byggð á kröfum laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár. Þú þarft ekki að setja þig inn í lagatextann: kröfurnar eru innbyggðar.

Skylda frá 1. desember 2026

Pappír og Excel duga ekki lengur

Rafræn sjúkraskrá þarf að gera meira en geyma nótur. Hún þarf að skrá hver skoðar hvað, varðveita fyrri útgáfur og gera skjólstæðingi kleift að nýta rétt sinn. Þetta er allt innbyggt í Fótaskrá, án aukakostnaðar.

  • Nafn og starfsheiti þess sem skráir fylgir hverri færslu 5. gr.
  • Breytingasaga: fyrri útgáfa komu er varðveitt við hverja breytingu 5. gr.
  • Ekkert hverfur: myndum og skjölum er ekki eytt endanlega 7. gr.
  • Útflutningur allra sjúkraskráa stofunnar ef starfsemi hættir 10. gr.
  • Aðgangsbann: skjólstæðingur getur bannað tilteknum starfsmanni aðgang 13. gr.
  • Afrit og aðgangsyfirlit fyrir skjólstæðing með einum smelli 14. gr.
Verð

Eitt verð, allt innifalið

Enginn stofnkostnaður, engir aukapakkar og engin binding. Prófaðu frítt í 14 daga.

Stofa
14.990 kr./ mánuði
Án VSK · einn notandi innifalinn
  • Sjúkraskrá og meðferðarnótur
  • Dagbók og tímabókanir
  • Myndir, teikningar og skjöl
  • Byggð á lögum um sjúkraskrár
  • Tveggja þrepa innskráning
  • Dagleg afritun og vöktun
  • Uppfærslur og nýir eiginleikar
  • Aðstoð beint frá þeim sem smíðar kerfið

Hver notandi umfram einn

1.990 kr./ mánuði án VSK

Hver starfsmaður fær eigin aðgang og starfsheiti, eins og lög gera ráð fyrir.

14.990 kr.

SMS-áminningar

8 kr./ SMS-hluta án VSK

Aðeins greitt fyrir það sem er sent. Venjuleg áminning á íslensku er 1–3 hlutar og þú sérð lengdina í stillingum.

Prófa frítt

Komdu stofunni í gang

Fylltu út formið og ég set upp aðganginn með þér, vanalega innan sólarhrings á virkum dögum.

Svona gengur þetta fyrir sig

  • Ég set upp stofuna og sendi þér boð í tölvupósti
  • Þú velur lykilorð og getur strax byrjað að bóka
  • 14 dagar frítt, og þú ákveður sjálf/ur hvort þú heldur áfram
  • Ég aðstoða við uppsetningu, meðferðir, opnunartíma og Noona-tengingu
Eða hafðu samband beint

📞 644 4444
✉️ gudni@fotaskra.is

Upplýsingarnar eru aðeins notaðar til að setja upp aðganginn og hafa samband. Sjá persónuvernd.

Spurningar

Algengar spurningar

Fyrir hverja er Fótaskrá?

Fyrir fótaaðgerðafræðinga og fótaaðgerðastofur af öllum stærðum, frá einyrkja sem leigir aðstöðu til stofu með marga starfsmenn. Kerfið heldur utan um sjúkraskrá, tímabókanir, SMS-áminningar, myndir og skjöl.

Hvað kostar Fótaskrá?

14.990 kr. á mánuði fyrir stofuna, án VSK, og einn notandi er innifalinn. Hver notandi umfram einn kostar 1.990 kr. á mánuði og SMS-áminningar 8 kr. á hvern SMS-hluta. Enginn stofnkostnaður og þú prófar frítt í 14 daga áður en nokkuð er rukkað.

Uppfyllir Fótaskrá kröfur um rafræna sjúkraskrá?

Fótaskrá er byggð á kröfum laga nr. 55/2009 um sjúkraskrár: nafn og starfsheiti við hverja færslu, breytingasaga, skráning á öllum aðgangi, afrit og aðgangsyfirlit fyrir skjólstæðing, aðgangsbann og útflutningur sjúkraskráa. Frá 1. desember 2026 er skylt að færa sjúkraskrá rafrænt.

Ég nota Noona – virkar það með Fótaskrá?

Já. Þú bókar áfram í Noona og bókanirnar birtast í dagbók Fótaskrár. Ef kennitala skjólstæðings er skráð í Noona tengist bókunin sjúkraskránni hans. Tengingin les aðeins úr Noona og engar heilsufarsupplýsingar fara frá Fótaskrá til Noona. Hafðu samband og við setjum tenginguna upp með þér.

Hvar eru gögnin geymd og eru þau örugg?

Gögnin eru hýst í gagnaveri innan Evrópska efnahagssvæðisins og öll umferð er dulkóðuð. Kerfið býður upp á tveggja þrepa innskráningu, skráir allan aðgang að sjúkraskrám og er undir stöðugri öryggisvöktun. Gögn eru afrituð daglega og afritin geymd á öðrum stað.

Þarf að setja eitthvað upp?

Nei. Fótaskrá keyrir í vafra á tölvu, spjaldtölvu og síma. Á spjaldtölvu eða síma tekurðu myndir beint inn í komu skjólstæðings.

Get ég haft fleiri en einn notanda?

Já. Hver starfsmaður fær eigin aðgang, lykilorð og starfsheiti og sinn dálk í dagbókinni. Einnig er hægt að fá móttökuaðgang sem sér dagbókina en ekki sjúkraskrár.

Hvað verður um gögnin ef ég hætti?

Gögnin eru þín. Þú getur flutt út allar sjúkraskrár stofunnar, með myndum og skjölum, hvenær sem er beint úr stillingum.

Viltu sjá kerfið fyrst?

Ég sýni þér Fótaskrá í stuttu símtali eða á fjarfundi, á þínum forsendum.

Prófa frítt Hver stendur að baki?